more from
Ván Records
We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.
/

lyrics

Kveljendur lambanna, í vesæld hýrumst.
Á flótta frá misgjörðum við svífum.
Segjum skilið við allt sem eitt sinn veitti dýrð,
er tómleikar veralda hefja sína rýrð.
Lostalíf vanvita þá leiddi til grafar.
Til helreiðar girndanna þeir riðu án vafa.
Græskulausar sálir kvöldu án griða
í andspyrnunni gegn öflum friðar.


Sorgir yfirtaka lönd og sæ,
er við yrkjum okkar hinstu kvalarbæn.
Drögumst fjendum fjær, við enda ótta.
Svífum brott í forláta faðm banasótta,
við falda tinda uppljómana.
Leynast gættir griða og náða, huldar dárum frá.
Lyklar grafnir í ösku dýrlinga.
Hverfum inn í mistur eyðingar.


Sem maðkar, við skríðum í faðm örlaga.
Eitt sinn lömb, lepjandi vonir úr spenum vanhæfra drottnara.
Með öldum, nafnlausar einingar ráfandi jarðir
í von um að ljós veittu ásjá í eymd,
en stjörnurnar sjá aldrei þá sem að huldir heimar hafna.


Kveljendur lambanna, í vesæld hýrumst.
Á flótta frá misgjörðum, við svífum.
Segjum skilið við allt sem eitt sinn veitti dýrð,
er tómleikar veralda hefja sína rýrð.


Sorgir yfirtaka lönd og sæ,
er við yrkjum okkar hinstu kvalarbæn.
Drögumst fjendum fjær, við enda ótta.
Svífum brott í forláta faðm banasótta.


Skríðum til glataðra griðastaða.
Nekjumst í refsileysi.
Skríðum í doða til hinsta dvala.
Fögnum í uppfuðrun.


Er allar brýr að baki brenndar eru,
finn mig við vörðurnar,
sem hylja rætur heiftar vorrar.
Sameinumst á mengaðri mold.
Böðumst í hreinsunareldi
og dönsum í logans ljóma.
Svífum brott án ótta,
inn í holskeflur hegninga.
Leggjumst í mýri
og fljótum til drauma í alsælu.
Hugsum til engla sem veraldir gleymdu
og grófu í eyðimörkum alda.
Hinstu atreið lokið.
Vottar iðrunar þvinga klóm í hug og hold.


Er allir vegir leitt þig hafa í þokur,
finn mig við enda alls
og horfum er heimar falla.
Böðumst í hreinsunareldi.
Dönsum í logans ljóma.
Leggjumst í mýri
og fljótum til drauma í alsælu.


Er allar brýr að baki brenndar eru,
finn oss við griðar gættir.
Herskáa, með bros á vör.
Böðumst í hreinsunareldi
og horfum er heimar fölna.
Er sálnahirðar smala hinum nafnlausu
og leiða til uppfuðrunar.

credits

from D​ö​nsum Í Logans Lj​ó​ma, released April 9, 2021

license

all rights reserved

tags

about

Forsmán Kópavogur, Iceland

contact / help

Contact Forsmán

Streaming and
Download help

Redeem code

Report this track or account

If you like Forsmán, you may also like: