more from
Ván Records
We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.
/

lyrics

Við endalok, í andstyggð, við að hyldýpinu herjum.
Við alsnauð syrgjum spámenn forna, fagnaðar og náðar.
Við boðberanna bálför, minnumst flóna glætu fjarri.
Í heiftarhug við fjötrum bölvum, reistum í kvöl og losta.

Í óreiðunni erfitt reyndist þrautina að þreyta.
Í örvæntingu til óbyggðanna héldum, í helför uppljómunar.
Í hrakviðri og stormum, barst hún útvöldum svo örlát.
Með forsmán loginn dofnaði.
Í hylinn sökkvum, eilífðin opnast ört.


Í heljargreipum fann ég þig svo skjannahvíta á hörund.
Með augun skær og flöktandi, í faðm þinn féll með þökk.
En formæli og fjendur vorir þig hirtu á brott í hlekkjum.
Í vesæld örkum fjöll og dali þakta vonarekkjum.


Erindrekar óttans,
herjum inn í nóttina.
Forsvaramönnum fortíðar
drekkjum í höfum eilífðar
og dönsum við eymdarsón.


Í eyðingunni virtist það augljóst
að flón myndu reisa hof á sandi.
Sem hrynja skyldu ört
við fyrstu andrá efa.
Úr rústum risu erfðafjendur framtíðar.


Í heljargreipum fann ég þig svo hrakta og að þrotum komna.
Í skelfingu og berskjöldun í barm þinn felldi tár.
Því manni flón í helför fleygðu í glötun við afnám kæti.
Í örkumlum og vesæld, dofnar hinsta vonarglætan.

credits

from D​ö​nsum Í Logans Lj​ó​ma, released April 9, 2021

license

all rights reserved

tags

about

Forsmán Kópavogur, Iceland

contact / help

Contact Forsmán

Streaming and
Download help

Redeem code

Report this track or account

If you like Forsmán, you may also like: